|
Mikil aðsókn að sumarstörfum 2010.
Undanfarin sumur hafa um 160 ungmenni á aldrinum 17 til 25 ára verið ráðin til umhirðustarfa í þeim 5 kirkjugörðum sem eru í umsjón KGRP: Fossvogskirkjugarður, Gufuneskirkjugarður, Kópavogskirkjugarður, Hólavallagarður við Suðurgötu og Viðeyjarkirkjugarður. Heldur færri sumarstarfsmenn verða ráðnir í þetta sinn vegna tekjuskerðingar.
Umsóknarfrestur rann út 1. apríl og bárust 805 umsóknir. Umsóknarfjöldi er nú langt yfir meðaltali en þó 15% færri en í fyrra en þá sóttu 946 um sumarstörf. Umsóknir á þensluárunum 2006 til 2008 voru að meðaltali 333 og hafði þeim fækkað verulega frá árunum 2003 til 2005 en þá var meðaltalið 687 umsóknir.
|