← Til baka í göngudagatal
Garðurinn – söguganga með Gerði Kristnýju
Dagsetning: 10.10.2026 kl. 11:00
Staður: Hólavallagarður
Árið 2008 sendi Gerður Kristný frá sér unglingabókina “Garðurinn” er segir fra vinunum Eyju og Sölva og atburðum sem hafa mikil áhrif á þeirra líf.
Í tilefni af endurútgáfu sögunnar bjóða Kirkjugarðar Reykjavíkur og Forlagið Útgáfa til sögugöngu um Hólavallagarð sem er sögusvið bókarinnar. Sagt verður frá Eyju og Sölva og ýmsu öðru skemmtilegu í garðinum. Gangan hentar vel 10 ára og eldri og foreldrum þeirra og tekur um klukkustund.
Heimir Janusarson umsjónarmaður Hólavallagarðs og Gerður Kristný höfundur Garðsins leiða gönguna.
Komið er saman við þjónustuhús við Ljósvallagötu.
Áætlaður tími frá 11-12.
