Dagsetning: 11.10.2025 kl. 10:30
Staður: Hólavallagarður
Ganga um Hólavallagarð í samstarfi við Fuglavernd
Komdu með í fróðlega og notalega göngu þar sem við kíkjum á fuglalíf Hólavallagarðs og kynnumst betur þeim garðfuglum sem þar hafa aðsetur. Á leiðinni verður fjallað um trjátegundir garðsins, hvaða hlutverki þær gegna fyrir fuglana og hvernig þær veita bæði skjól og fæðu. Heimsótt verða leiði nokkurra valinkunnra skálda sem hafa ort um fugla og stiklað á stóru í sögu Hólavallagarðs.
Við ræðum jafnframt hvernig hægt er að skapa betra umhverfi fyrir garðfugla og hvaða tækifæri felast í því að huga að gróðri sem styður fjölbreytt fuglalíf í borginni.
Þetta er einstakt tækifæri til að sameina útiveru, fróðleik og fegurð garðsins – og njóta samveru í kyrrlátu umhverfi miðborgarinnar.
Áætlaður tími frá 10:30-12:00. Hámarksfjöldi 45 manns.