← Til baka í göngudagatal

Jólabókaflóðið 2025 í Fossvogsgarði

Dagsetning: 01.11.2025 kl. 17:00

Staður: Fossvogsgarður

Í gegnum árin hefur margt verið ritað um þær sögufrægu persónur sem hvíla í Fossvogsgarði. Í ár er engin undantekning þar á en í gönguna munu mæta nokkrir vel valdir rithöfundar jólabókaflóðsins 2025. Þær Sif Sigmarsdóttir og Kristín Svava munu segja frá verkum sínum um leið og þær heimsækja leiði þerra sem gefið hafa þeim innblástur til ritstarfa og sköpunar. Einnig verður staldrað við aðrar sögufrægar persónur í garðinum sem sett hafa svip á jólabókaflóð fyrri ára.

Leiðsöguaður: Bryndís Björgvinsdóttir
Búnaður: Vatnsheldir skór – klæðnaður eftir veðri.

Áætlaður tími frá 17:00-18:30. Hámarksfjöldi 45 manns.