Listaverk og minnisvarðar í Fossvogsgarði

Dagsetning: 07.08.2025 kl. 19:00

Staður: Fossvogsgarður

Listaverka- og minnisvarðaganga í Fossvogsgarði undir leiðsögn Bryndísar Björgvinsdóttur starfsmanns garðsins. Í þessari göngu verður lögð sérstök áhersla á að skoða þá minnisvarða og þau listaverk sem prýða Fossvogsgarð. Sum verkanna endurspegla sögulega atburði 20. aldar en önnur hafa verið reist til minningar um ákveðna einstaklinga. Þá verður einnig staldrað við áhugaverð tré og annan gróður sem skoða má út frá sögulegu samhengi.

Komið er saman fyrir framan Fossvogskirkju.

Áætlaður tími frá 19:00-20:30. Hámarksfjöldi 40 manns.