Saga Hólavallagarðs

Dagsetning: 11.07.2026 kl. 10:30

Staður: Hólavallagarður

Saga Hólavallagarðs undir leiðsögn Heimis Janusarsonar. 

Í göngunni verður farið yfir sögu Hólavallagarðs og skoðuð verða minningarmörk er segja sögu um hugarfar hvers tíma. Skipulag garðsins verður skoðað í samhengi við borgarskipulag ásamt því að farið verður yfir gróðursögu garðsins og áhugaverð tré skoðuð. Síðast en ekki síst verður farið yfir friðlýsingu á Hólavallagarði og hvaða áhrif það hefur á garðinn og starfsemina í honum.

Komið er saman við þjónustuhús við Ljósvallagötu.

Áætlaður tími frá 10:30-12:00. Hámarksfjöldi 45 manns.