← Til baka í göngudagatal
Saga Hólavallagarðs – Menningarnótt
Dagsetning: 22.08.2026 kl. 14:00
Staður: Hólavallagarður
Saga Hólavallagarðs undir leiðsögn Heimis Janusarsonar.
Í göngunni verður farið yfir sögu Hólavallagarðs og skoðuð verða minningarmörk er segja sögu um hugarfar hvers tíma. Skipulag garðsins verður skoðað í samhengi við borgarskipulag ásamt því að farið verður yfir gróðursögu garðsins og áhugaverð tré skoðuð. Síðast en ekki síst verður farið yfir friðlýsingu á Hólavallagarði og hvaða áhrif hún hefur á garðinn og starfsemina í honum.
Komið er saman við þjónustuhús við Ljósvallagötu.
Áætlaður tími frá 14:00-15:30. Hámarksfjöldi 45 manns.
