← Til baka í göngudagatal
Tímaþjófurinn og Veisla þrjú – gengið um sögusviðið
Dagsetning: 24.10.2026 kl. 13:30
Staður: Hólavallagarður
Í tilefni þess að um þessar mundir eru liðin 40 ár frá útgáfu skáldsögunnar Tímaþjófurinn eftir Steinunni Sigurðardóttur og til þess að fagna útgáfu á nýjasta verki Steinunnar Veisla þrjú, bjóða Kirkjugarðar Reykjavíkur og Forlagið Útgáfa til göngu þann 24 október um hluta af sögusviði þessara tveggja bóka.
Lagt verður af stað kl 13:30 frá Menntaskólanum í Reykjavík með viðkomu á Austurvelli og endað í Hólavallagarði.
Höfundurinn Steinunn Sigurðardóttir og Heimir Janusarson umsjónarmaður með Hólavallagarði leiða gönguna.
