
Samsetning 1
Blómin eru sett út upp úr mánaðarmótum maí/júní í keri með mold sem staðsett er á leiðinu. Kerið er 30 cm. Blómin eru fjarlægð í október/nóvember.
Harðgerð planta sem þarf bjartan og hlýjan vaxtarstað en gengur vel í hálfskugga.
Hentar til dæmis vel á skógarsvæði eins og elsta hluta Fossvogsgarðs.
Innifalið er umhirða fram í miðjan ágúst sem felst í þremur vökvunum, áburðargjöf og endurnýjun blóma ef þörf er á.
Ath. mynd er útbúin með aðstoð gervigreindar en sýnir hvernig kerið gæti litið út
Verð: 18.000 kr.